Movie: Vaiana (Moana) Singer: Eyþór Ingi Gunnlaugsson LYRICS: Sko, Tamatoa var ekki alltaf svona töff Var bara drabbarakrabbi En nú er ég bara glaður, ekkert blöff Því ég er fallegur, elskan Sagði amma þín: Hlusta á hjartað þitt? Ver sú sem þú ert hið innra? Í þremur orðum vil ég benda þér á eitt Sú gamla laug! Það er betra að glansa Eins og fjársjóður úr sjóræningjaksel Skrúbba vel og láta það glansa Ég mun glitra eins og hefðarmeyjar háls Eftir smá Veistu að fiskar eru domm, domm, domm og þeir elta allt sem glitrar Stórfréttir! Ó, og hér þeir koma, komm, komm, til þess bjartasta sem glitrar Mmm, fiskréttir Ég elska að borða og þig ét án orða Jæja, jæja, jæja Litli Maui er í vanda með útlit Þú litli hálfi-smálfi-mini-guð Áts, þetta gengur ekki vel Er bölvað strit. Fattarðu? Því þú hittir ekki, væni minn Samt ég hrósa verð þér fyrir þetta tvist og fínu húðlistaverkin Því eins og þú, ég gerði sjálfan mig að list Ég get ei falið mig því ég glansa Sjá mig ljóma eins og demanta á haug Fetta og bretta mig því ég glansa Sendu hermenn en það verður ekkert spaug Mín skel er hörð, Maui minn Ekki meir, meir, meir Þú getur vart þess vænst að hálfur guð toppi þetta stuð, flettu því upp Og þú deyr, deyr, deyr Nú ég þarf að rífa í parta þitt auma hjarta Óralangt frá þeim sem skildu þig eftir Þú leitar að ást þeirra sem þig ei vildu Æ, reyn þig að herða En þín brynja er ekki nógu vel gerð Maui, nú er tími til að stansa Hefur þú séð nokkurn glansa eins og mig? Það er það síðasta sem þú sérð C'est la vie, mon ami Já, ég glansa Nú ég ét þig, berðu upp þína hinstu bón, litla flón Þú munt aldrei ná að glansa Þú þráir að fá að glansa
Loop this playlist (1 video)